Persónuvernd
Hvaða persónuupplýsingar HAF vinnur, af hverju, hversu lengi og hver réttindi þín eru.
Ábyrgðaraðili
- Ábyrgðaraðili
- Haf Næring ehf.
- Kennitala
- 521023-0150
- Netfang
- haf@hafvitamin.is
Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (almenna persónuverndarreglugerðin), sem gildir að fullu hér á landi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Persónuvernd hefur eftirlit með henni.
Hvaða upplýsingar eru unnar
| Upplýsingar | Tilgangur og heimild | Geymslutími |
|---|---|---|
| Nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer, pöntunarlínur | Að efna kaupsamninginn og afhenda vöruna — 6. gr. 1. mgr. b-liður (samningur) | Meðan pöntun er í vinnslu |
| Reikningar og bókhaldsgögn | Lagaskylda um varðveislu bókhalds — 6. gr. 1. mgr. c-liður, sbr. lög nr. 145/1994 um bókhald | 7 ár |
| Samskipti vegna fyrirspurna, kvartana og skila | Að svara þér og halda utan um réttindi beggja — 6. gr. 1. mgr. b- og f-liður (lögmætir hagsmunir) | Þar til málinu lýkur, að teknu tilliti til kvörtunarfresta |
| Netfang á póstlista | Samþykki þitt — 6. gr. 1. mgr. a-liður | Þar til þú afskráir þig |
HAF safnar engum upplýsingum sem teljast viðkvæmar í skilningi 9. gr. reglugerðarinnar. Kaup á vöru úr vefversluninni krefjast engra heilsufarsupplýsinga og HAF spyr ekki um þær.
Engin sjálfvirk ákvarðanataka eða gerð persónusniðs fer fram.
Hvaðan upplýsingarnar koma
Frá þér sjálfum, þegar þú pantar, hefur samband eða skráir þig á póstlista. HAF kaupir hvorki né sækir persónuupplýsingar annars staðar frá.
Vefurinn hafvitamin.is geymir eitt gildi í búnaði þínum: auðkenni körfunnar undir lyklinum haf:cart-id í staðbundinni geymslu vafrans. Það er ekki vafrakaka og fylgir þér ekki milli vefsvæða. Sjá vafrakökustefnuna.
Hverjir fá upplýsingarnar
Upplýsingarnar eru ekki seldar og ekki afhentar öðrum til markaðssetningar. Þær berast eingöngu þeim sem þarf til að ljúka pöntuninni:
- Shopify — rekur greiðslusíðuna og geymir pöntunina. Kortaupplýsingar berast aldrei til HAF.
- Flutningsaðili — Dropp fær nafn, heimilisfang og samskiptaupplýsingar til að koma sendingunni til skila.
- Bókhald og endurskoðun — að því marki sem lagaskylda krefst.
Þessir aðilar eru vinnsluaðilar HAF og starfa samkvæmt vinnslusamningi. Fari vinnsla fram utan Evrópska efnahagssvæðisins byggist flutningurinn á viðurkenndum ákvörðunum framkvæmdastjórnarinnar um fullnægjandi vernd eða á stöðluðum samningsákvæðum, ásamt þeim viðbótarráðstöfunum til verndar persónuupplýsinga sem við á hverju sinni.
Póstlisti og markaðssetning
Markaðspóstur er eingöngu sendur þeim sem hafa veitt samþykki fyrir fram. Reiturinn er aldrei forhakaður, orðalag samþykkisins er geymt með dagsetningu og uppruna, og í hverjum pósti er hlekkur til að afskrá sig. Um þetta gilda lög um fjarskipti nr. 70/2022, sem Fjarskiptastofa hefur eftirlit með.
Listar eru bornir saman við bannskrá Þjóðskrár Íslands áður en þeir eru notaðir. Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er; afturköllun hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fram að henni.
Öryggi
Vefurinn er borinn fram um HTTPS. Greiðsluferlið fer fram hjá Shopify og kortaupplýsingar eru hvorki sendar til HAF né geymdar á hafvitamin.is. Aðgangur að pöntunum er takmarkaður við þá sem þurfa hann til að afgreiða þær.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem HAF vinnur um þig;
- fá rangar upplýsingar leiðréttar;
- fá upplýsingum eytt þegar skilyrði eru til þess;
- fá vinnslu takmarkaða eða andmæla henni;
- fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi eða fluttar annað;
- afturkalla samþykki sem þú hefur veitt.
Beiðnum er svarað án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en innan mánaðar. Rétturinn til eyðingar víkur fyrir varðveisluskyldu bókhaldsgagna á meðan hún stendur.
Sértu ósátt eða ósáttur við vinnsluna geturðu borið málið undir Persónuvernd, sem er eftirlitsstjórnvald á þessu sviði hér á landi.
Börn
Vefverslunin er ekki ætluð börnum og HAF safnar ekki vísvitandi persónuupplýsingum um þau. Kaupandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Breytingar á stefnunni
Sé stefnunni breytt birtist ný dagsetning efst á síðunni. Verulegar breytingar sem varða þig eru kynntar sérstaklega.